Fata (Askja)
Byggt á fyrstu framleiðsluaðferð sem
ég notaði þegar ég var barn í sand-
kassanum.  Þar fyllti ég hverja fötuna á
fætur annari af blautum sandi og byggði upp
heilu borgirnar á góðum degi.  Borðið fylgir
þessari fyrstu framleiðsluaðferð, mótið er
fyllt upp með sandi og því er fylgt með því
að pressa sandinn í það með höndunum.
Eftir að borðið kemur úr mótinu má sjá
greinilegan mun á sléttu yfirborði borðsins
og svo innri hluta sem pressaður var með
höndum, sem gerir það að verkum að ekkert
borð er eins.
Borðið er búið til úr sandi úr fjöru nærri
Jökulsárlóni.
Í miðju borðsins er kassi sem
hægt er að fylla með sandi og setja í kerti
eða blóm.  Það er þó undir notandanum
komið hvað hann notar hann enda mögu-
leikarnir fjölmargir.



Iglue